24.01.2012 12:41:50 / 7flokkurir
Æfingarnar á föstudaginn og sunnudaginn falla niður þar sem Seljaskóli er lokaður. Það er verið að skoða hvort að við munum geta fært æfingarnar eitthvað til en það er ekki orðið ljóst enn. Upplýsingar um það mun birtast hérna á síðunni.
»
10.01.2012 00:48:51 / 7flokkurir
Mótið verður haldið í stóra knattspyrnuhúsinu í Keflavík. Fyrir ofan hópana stendur klukkan hvað strákarnir eiga að mæta. Spila tímim er í kringum 2 klukkatíma.
Þeir sem spila í Víkingadeildinni mæta klukkan 09:00
Ólafur, Ragnar, Benjamín, Baldur, Ísak, Óskar, Stefán, Huldar og Elvar.
Þeir sem spila í Stapadeildinni mæta klukkan 10:45
Birgir, Brynjar, Hákon, Kristján, Róbert, Örnólfur, Baltasar og Gunnlaugur.
Þeir sem spila í Reykjanesdeildinni mæta klukkan 12:50
Andrí Ásberg, Davíð, Hjörtur, Dagur, Leiknir, Jakop og Daníel.
Þeir sem spila í Eldeyjardeildinni mæta klukkan. 14:30
Jónbjörn, Óliver, Helgi, Andri F, Gestur, Egill og Aron.
Ég vil biðja ykkur um að fylgjast vel með hérna á síðunni ef eitthvað mun breytast.
»
02.01.2012 23:30:12 / 7flokkurir
Fyrsta mót ársins verður sunnudaginn 15. Jan. Mótið verður haldið í Reykjaneshöllinni og er kostnaður við það 1500 krónur.
Þeir strákar sem ætla að vera með þurfa að skrá sig hér á síðunni og stendur sú skráning til mánudagsins 9. jan. Á mánudagskvöldið verða liðin ásamt tímasetningu birt hér á síðunni og er lítið svigrúm til að breyta þeim eftir það þar sem liðin munu spila á mismunandi tímum.
Æfingar verða svo á sömu tímum áfram og byrjum við fyrstu æfingu aftir áramótin föstudagnn 6. jan í Seljaskóla.
»
21.12.2011 09:40:47 / 7flokkurir
Sælir ÍR ingar!
Nú er komið að því sem allir hafa beðið eftir.......Þorrafagnaður ÍR í janúar.
Þetta verður stærðarinnar hátíð og ætlum við að taka höndum saman, ÍR ingar sem og aðrir sem tengjast hverfinu, og hafa gríðarlega gaman. Hvetjum við ykkur að smala saman vinum úr félagin eða brottfluttum og koma og gleðjast saman, eitthvað er um að fólk bjóði í heimahús í hverfinu og rölti sér svo á samkomuna.
Verðinu er haldið í lágmarki en til þess þurfum við mikinn fjölda fólks. Athugið að maturinn verður mjög fjölbreyttur og vel úti látinn og íþróttahús Seljaskóla verður sett í veislubúning þennan dag.....mjög skemmtileg tilbreyting.
Nú er um að gera að kaupa miða, en miðasala er hafin á www.ir.is (kreditkort). Miðar verða svo seldir á skrifstofu ÍR og Noon&Súper Sól í Hólmaseli fljótlega í næstu viku.
Það er um að gera að koma miðanum í jólapakkann, hvað annað :-)
Athugið að það er 18 ára aldurstakmark.

»
12.12.2011 21:57:44 / 7flokkurir
Sunnudaginn 18. des verður síðasta æfingin fyrir jól. Þá förum við í jólafrí og byrjum svo aftur á nýju ári föstudaginn 6. jan.
»
08.12.2011 16:35:47 / 7flokkurir
Fótboltafjör verður haldið í Seljaskóla laugardaginn 10. desember næstkomandi. Við hvetjum alla til að mæta. Hver aldurshópur í yngriflokkum kemur á þeim tímum sem eru auglýstir hér í fylgiskjali. Klikkið á fótboltafjör og þá sjáið þið dagskránna.
Allir iðkendur eiga að taka pabba og mömmu með. Iðkendur flokkana ætla að spila fótbolta við foreldra. Aðrir fjölskyldumeðlimir eru alltaf velkomnir og auðvitað amma og afi.
Viljum bara sjá sem flesta.
»
05.12.2011 11:59:59 / 7flokkurir
Æfingin í dag mánudaginn 5 des mun falla niður vegna kulda. Við þjálfararnir munum vera á staðnum og taka á móti þeim strákum sem koma og finna eitthvað að gera fyrir þá.
»
30.11.2011 22:43:45 / 7flokkurir
Æfingin á sunnudaginn fellur niður þar sem það er einhver viðburður í Seljaskóla.
Áðan sendi ég póst á alla sem eru búnir að skrá sig inn í nýja skráningarkerfið hjá ÍR um æfingarleikinn á laugardaginn. Ef að einhverjir hafa ekki fengið póstinn, sendið mér póst á arni.gudmundsson@reykjavik.is og látið mig vita til að ég geti sett ykkur inn á póstlistann hjá mér.
»
30.11.2011 17:51:05 / 7flokkurir
Á laugardaginn 3. des ætlum við að spila æfingaleik við Aftureldingu. Leikurinn verður í Egilshöllinni og hefst hann klukkan 16:00. Það er gott að vera mættir korteri fyrr svo að við getum byrjað um klukkan 16:00
Þeir sem ætla að vera með skrái hér á síðunni.
»
23.11.2011 14:05:26 / 7flokkurir
Meistaraflokkar ÍR og Leiknis í fótbolta mætast á föstudaginn í minningarleik um Hlyn Þór Sigurðsson á ÍR-vellinum klukkan 18:00. Í fyrsta sinn með Andra Marteins og Willum sem þjálfara þessara tveggja liða.
Frítt er á leikinn en frjáls framlög eru vel þegin í minningarsjóð Hlyns. Hvetjum við því alla til að mæta, úr öllum deildum og fáum aðra með okkur.
Hlynur, var 18 ára gamall þegar hann varð bráðkvaddur þann 25. nóvember 2009 á æfingu hjá ÍR, en hann iðkaði knattspyrnu hjá félaginu ásamt því að þjálfa yngri iðkendur og gegna ýmsum störfum innan félagsins.Hann gerði ekki bara marga frábæra hluti í þágu félagsins heldur var hann einnig virkur í félagslífi og duglegur námsmaður.
Í sumar var haldið mót fyrir yngri flokka sem kallast Hlynsmót og er stefnt að því að hafa það sem árlegan viðburð en það gekk vel fyrir sig í sumar þar sem skipt var í deildir úr Evrópu í stað A, B, C eða D liða. Það var þá enska, ítalska, spænska og þýska deildin.
Félögin hvetja sem flesta til þess að styrkja málefnið og í leið sjá hörkuleik í Breiðholtinu. Þeir sem sjá sér ekki fært um að mæta á leikinn og vilja minnast Hlyns geta gefið frjálst framlag inn á reikn: 0115-05-60550 kt: 411209-0160
»
21.11.2011 02:25:00 / 7flokkurir
Kæru foreldar/forráðamenn..
Samkvæmt beiðni frá meistraflokksráði karla þá báðu þeir okkur hjá Barna og unglingaráði að auglýsa eftir því hvort þið vitið um eða eigið íbúð til leigu til og með 10. desember. Og síðan aftur frá 6. janúar 2012 og til loka keppnistímabilsins fyrir Jamie McCunnie spilandi aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Halla formanni meistaraflokksráðs karla með vefpósti á halli@studioh.is eða hringja í síma 770-1500.
»
18.11.2011 21:58:04 / 7flokkurir
Æfingin á sunnudaginn 20. nóv fellur niður þar sem það er körfuboltamót í Seljaskóla. Næsta æfing verður á mánudaginn.
»
12.11.2011 00:49:37 / 7flokkurir
Á þriðjudaginn 15. nóv. ætlum við að spila æfingaleik við Breiðablik. Leikurinn verður spilaður í Kórnum og er hann á milli 17:00 og 18:00. Gott er að strákarnir mæti 15 mín. áður en við byrjum að spila til að við séum tilbúnir þegar leikurinn hefst.
Sunnudaginn 20. nóv. fellur æfingin niður þar sem húsið er upptekið á æfingartímanum okkar.
»
24.10.2011 01:37:57 / 7flokkurir
Kæru foreldrar og velunnarar knattspyrnudeildar ÍR !!
Skemmtikvöld knattspyrnudeildarinnar verður haldið í ÍR heimilinu föstudagskvöldið 4. nóvember og hefst fjörið klukkan 20:00 og stendur yfir fram eftir nóttu.
– síðast var MIKIÐ fjör – þetta kvöld verður ekki síðra!!
/>
ü Léttar veitingar verða til sölu />
ü Happdrætti með frábærum vinningum,
meðal annars frá: Fiskbúð Hólmgeirs, Tapas barnum, Þín verslun, Bakarameistaranum, Borgarleikhúsinu og margir fleiri flottir vinningar. />
ü Posi á staðnum />
ü Enginn aðgangseyrir />
ü Síðast en ekki síst þá ætlar þú ætlar að mæta ásamt öllum hinum J />
> >
Látið þennan viðburð ekki fram hjá ykkur fara J />
FÖSTUDAGURINN 4. NÓVEMBER KLUKKAN 20:00 />
Kveðja Nefndin.
»
14.10.2011 00:15:44 / 7flokkurir
Á mánudaginn 17.okt. verður foreldrafundur. Fundurinn fer fram á 2 hæð í ÍR heimilinu og hefst hann klukkan 19:00. Efni fundarins verður starfs flokksins á komandi tímabili.
»
Síður:
1 2 3 ...
11